|
|
Aðlögun |
|
|
Aðlögunarferli leikskólans Þegar barn byrjar í leikskóla verða miklar breytingar í lífi þess. Sú aðferð sem við notum til að aðlaga barn í leikskólann er svonefnd þátttökuaðlögun og byggir á því að barn og foreldri læra saman á nýjar aðstæður. Þátttökuaðlögun byggir m.a. á þeirri trú að foreldrar smiti eigin öryggiskennd, forvitni og tilhlökkun yfir þessum nýju aðstæðum til barna sinna. Foreldrar eru þátttakendur frá fyrsta degi og öðlast þar með öryggi um skipulag skólans, ásamt því að sjá starfsmenn í verki. Með góðum aðlögunartíma aukast tengslin milli foreldra og starfsmanna og grunnur er lagður að áframhaldandi foreldrasamstarfi. Foreldrar kynnast ekki bara starfsmönnum heldur einnig öðrum börnum og foreldrum. Framkvæmd þátttökuaðlögunar felst í því að aðlaga stóran barnahóp samtímis á þremur dögum. Foreldrar sinna öllum þörfum barna sinna þessa þrjá daga og fara ekkert frá. Á þriðja degi aðlögunar er hádegisfundur þar sem kennarar kynna SMT- skólafærni sem er agastefna leikskólans, mjög gott er ef báðir foreldrar geta setið þessa kynningu. Á meðan á aðlögunartíma stendur eru foreldrar, börn og starfsmenn merkt með nafninu sínu til að samskipti gangi betur, starfsmenn útbúa þessar merkingar. Af virðingu við börn og starfsmenn leikskólans eru foreldrar beðnir um að nota ekki GSM síma á meðan á aðlögun stendur. Við vonumst til að foreldrar njóti þess að vera með okkur í leik og starfi á aðlögunartíma barnsins.
Ef foreldrar taka eftir einhverju sem betur má fara biðjum við þá vinsamlega að láta okkur vita. Trúnaður foreldra Í aðlögun dvelja foreldrar í leikskólanum. Bæði þá og í öðrum samskiptum við leikskólann koma þeir til með að sjá og heyra ýmislegt um hin börnin. Við óskum eftir að foreldrar sýni leikskólanum trúnað og ræði þau mál ekki út á við. |
__________________________________________________________________________________________
|
Dagskipulag – Þátttökuaðlögun 2011 ![]()
|